Stefnuskrár flokkanna í Árborg

Stefnumál allra lista á einum stað

Hlutlaus upplýsingavefur fyrir sveitarstjórnarkosningar í Árborg.

Listar

B
Listi xb

Framsókn

Vinna, Vöxtur, Velferð

Frambjóðendur

  1. Matthías Bjarnason
  2. Ellý Tómasdóttir
  3. Arnar Freyr Ólafsson
  1. Guðrún Rakel Svandísardóttir
  2. Magnús Benediktsson
  3. Kristín Júlía Hannesdóttir
  4. Árdís Lilja Gísladóttir
  1. Guri Hilstad Ólason
  2. Óskar Hróbjartsson
  3. Ólafur Már Ólafsson

Velferð

  • Bæta aðgengi að stuðningi — sérstaklega fyrir börn og ungmenni
  • Tryggja stuðning og ráðgjöf við fjölskyldur samhliða þjónustu við börn
  • Tryggja betri samfellu milli skóla, frístunda og velferðarþjónustu
  • Tryggja aðgengi fatlaðs fólks og einstaklinga með fjölbreyttar stuðningsþarfir
  • Stuðla að búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
  • Nýta velferðartækni til að styrkja sjálfstæði íbúa
  • Vinna með atvinnulífinu að tækifærum fyrir ungmenni með skerta starfsgetu
  • Tryggja fagfólki góð starfsskilyrði
  • Efla samráðsvettvang fatlaðs fólks
  • Tryggja íbúum af erlendum uppruna vettvang til þátttöku í stefnumótun