Stefnuskrár flokkanna í Árborg

Stefnumál allra lista á einum stað

Hlutlaus upplýsingavefur fyrir sveitarstjórnarkosningar í Árborg.

Listar

B
Listi xb

Framsókn

Vinna, Vöxtur, Velferð

Frambjóðendur

  1. Matthías Bjarnason
  2. Ellý Tómasdóttir
  3. Arnar Freyr Ólafsson
  1. Guðrún Rakel Svandísardóttir
  2. Magnús Benediktsson
  3. Kristín Júlía Hannesdóttir
  4. Árdís Lilja Gísladóttir
  1. Guri Hilstad Ólason
  2. Óskar Hróbjartsson
  3. Ólafur Már Ólafsson

Menning og listir

  • Tryggja aðgengi allra íbúa að menningu og listum, óháð aldri, uppruna, búsetu eða félagslegum aðstæðum
  • Stuðla að fjölbreyttu menningarlífi með því að styðja við viðburðahald víðsvegar um sveitarfélagið
  • Skapa betri aðstæður og rými fyrir listsköpun og viðburðahald með fjölbreyttri notkun húsnæðis í eigu sveitarfélagsins
  • Tengja menningu betur við skóla, frístundir og samfélagsstarf
  • Gera fjölmenningu hátt undir höfði með fjölmenningarviðburðum af mismunandi toga
  • Setja á fót Menningarsjóð í Árborg
  • Móta framtíðarsýn og finna raunhæfar lausnir fyrir menningarhús