Stefnuskrár flokkanna í Árborg

Stefnumál allra lista á einum stað

Hlutlaus upplýsingavefur fyrir sveitarstjórnarkosningar í Árborg.

Listar

B
Listi xb

Framsókn

Vinna, Vöxtur, Velferð

Frambjóðendur

  1. Matthías Bjarnason
  2. Ellý Tómasdóttir
  3. Arnar Freyr Ólafsson
  1. Guðrún Rakel Svandísardóttir
  2. Magnús Benediktsson
  3. Kristín Júlía Hannesdóttir
  4. Árdís Lilja Gísladóttir
  1. Guri Hilstad Ólason
  2. Óskar Hróbjartsson
  3. Ólafur Már Ólafsson

Rekstur og stjórnsýsla

  • Lækka fasteignaskatt á heimili og fyrirtæki
  • Jafna leikinn með einföldun á gjaldskrá hvað varðar húsnæðisuppbyggingu (afnema byggingarréttargjald)
  • Tryggja betri nýtingu fjármuna með skýrri forgangsröðun og langtímamarkmiðum
  • Einföldun ferla og skýr samskipti við sveitarfélagið
  • Skipulag og þjónusta taki mið af vexti sveitarfélagsins
  • Bæta upplýsingagjöf og gagnsæi í ákvarðanatöku
  • Tryggja jafnræði í stjórnsýslu
  • Ákvarðanataka um ungmenni og eldra fólk fari til umsagnar þeirra ráða
  • Styðja starfsfólk í símenntun og endurmenntun
  • Vellíðan starfsfólks hluti af allri stefnumótun